Falleg og stílhrein herbergi með þægilegum rúmum og mjúkum rúmfötum. Við notum sápur og shampó frá Sóley, lífrænt vottaðar húðsnyrtivörur úr hreinni íslenskri náttúru.
Falleg og stílhrein herbergi með þægilegum rúmum og mjúkum rúmfötum. Við notum sápur og shampó frá Sóley, lífrænt vottaðar húðsnyrtivörur úr hreinni íslenskri náttúru. Herbergin á Hótel Höfn eru 12-18 fermetrar að stærð og vonum við að hlýjar móttökur ásamt fallegu jöklaútsýni og bragðgóðum mat bæti upp fyrir stærð herbergjanna. Það er engin lyfta hjá okkur en við hjálpum gjarnan til við að bera farangur gesta okkar .